Stjórnandi forrita
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stjórnandi
. Þú getur sett
upp tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu:
• J2ME™ forrit byggð á Java™ tækni með endingunni .jad
eða .jar (
).
• Önnur forrit og hugbúnaður sem henta Symbian-
stýrikerfinu (
). Uppsetningarskrárnar hafa
endinguna .sis. Settu aðeins upp hugbúnað sem er
sérstaklega hannaður fyrir Nokia N70 tækið.
Hugbúnaðarframleiðendur vísa stundum til opinbers
heitis þessarar vöru: Nokia N70-1.
Hægt er að flytja uppsetningaskrár í tækið úr samhæfðri
tölvu, hlaða þeim niður meðan þú vafrar eða senda þær til
þín sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða
með Bluetooth-tengingu. Þú getur notað Nokia
Application Installer í Nokia PC Suite til að setja upp forrit
í tækinu eða á minniskorti. Ef þú notar Microsoft Windows
Explorer til að flytja skrá skaltu setja skrána á minniskort
(staðbundinn disk).
Dæmi: Ef þú hefur fengið uppsetningarskrána sem
viðhengi í tölvupósti skaltu opna pósthólfið þitt, opna
tölvupóstinn, þá viðhengjaskjáinn, velja
uppsetningarskrána og ýta á
til að hefja
uppsetninguna.