Vottorðastjórnun
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Útskýring: Stafræn vottorð eru notuð til að
sannreyna uppruna XHTML- eða WML-síðna og
uppsetts hugbúnaðar. Aðeins er hægt að treysta þeim
ef það er öruggt að þau séu ófölsuð.
Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á
til að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til
staðar.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna á
vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og
settur upp.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr
þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Ef textinn
Vottorð útrunnið
eða
Vottorð ekki enn gilt
birtist þó svo
að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag-
og tímasetning er á tækinu.
Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki
kannaður
Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar búið
er að kanna undirskrift og gildistíma miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef
ekki er rétt öryggisvottorð í tækinu.
Til að sjá upplýsingar um vottorð skaltu velja það og síðan
Valkostir
>
Upplýs. um vottorð
. Þegar upplýsingar um
vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins kannað og einhver
af eftirfarandi athugasemdum getur birst:
•
Vottorði ekki treyst
—Þú hefur ekki valið vottorðið
fyrir nein forrit. Sjá ‘Trauststillingum breytt’ á bls. 106.
•
Vottorð útrunnið
—Gildistími vottorðsins hefur
runnið út.
•
Vottorð ekki enn gilt
—Vottorðið hefur ekki enn
tekið gildi.
•
Vottorð skemmt
—Það er ekki hægt að nota vottorðið.
Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.
Trauststillingum breytt
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og að
það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Skrunaðu að heimildarvottorði og veldu
Valkostir
>
Stillingar f. traust
. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem
valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:
Verkfæri
107
Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.
•
Symbian-uppsetning
:
Já
—Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Symbian stýrikerfisforrits.
•
Internet
:
Já
—Vottorðið getur sannreynt miðlara.
•
Uppsetning forrita
:
Já
—Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Java-forrits.
Veldu
Valkostir
>
Breyta still. f. traust
til að breyta
gildinu.