Nokia N70 - Sími og SIM

background image

Sími og SIM

Beðið um PIN-númer

—Þegar þessi stilling er virk er beðið

um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu. Ekki er
víst að öll SIM-kort leyfi að beiðni um PIN-númer sé gerð

óvirk. Sjá ‘Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir
læsingu’ á bls. 105.

PIN-númer

,

PIN2-númer

og

Númer fyrir læsingu

—Þú

getur breytt númerinu fyrir læsingu auk PIN- og PIN2-
númeranna. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur frá 0
til 9. Sjá ‘Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir
læsingu’ á bls. 105.

Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer.

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

Sjálfv. læsingartími

—Þú getur valið tímann sem líður þar

til tækið læsist sjálfkrafa. Þá er aðeins hægt að opna tækið
aftur með því að slá inn rétt númer fyrir læsingu. Sláðu inn
tímann í mínútum eða veldu

Enginn

til að óvirkja þennan

valkost.

Tækið er opnað með því að slá inn númer fyrir læsingu.

Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja í
opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Ábending! Til að læsa tækinu handvirkt skaltu ýta á

. Listi yfir skipanir opnast. Veldu

Læsa síma

.

background image

Verkfæri

105

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

Læsa ef skipt um SIM

—Þú getur látið tækið biðja um

númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.

Lok. notendahópur

—Þú getur tilgreint hóp fólks sem þú

getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa
getur samt verið hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Staðfesta SIM-þjón.

—Þú getur látið tækið birta

staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).

Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

PIN-númer—Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað í
leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Ef PIN-númerið er slegið rangt inn
þrisvar sinnum lokast PIN-númerið og það þarf að opna
það áður en hægt er að nota SIM-kortið aftur. Sjá
upplýsingarnar um PUK-númer í þessum hluta.

UPIN-númer—Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota í
UMTS-farsímum. UPIN-númerið hindrar að USIM-kortið
sé notað í leyfisleysi.

PIN2-númer—Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Númer fyrir læsingu (einnig þekkt sem öryggisnúmer)—
Hægt er að nota þetta númer (5 tölustafir) til að læsa
tækinu og þannig hindra að það sé notað í leyfisleysi.
Upphaflega númerið fyrir læsingu er 12345. Breyttu
númerinu fyrir læsingu til að koma í veg fyrir óleyfilega
notkun tækisins. Haltu nýja númerinu leyndu og á
öruggum stað fjarri tækinu.

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir) eru
nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða PIN2-
númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu skaltu
hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig fá SIM-
kortið.

UPUK-númer—Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt
til að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki
með USIM-kortinu skaltu hafa samband við
símafyrirtækið sem lét þig fá USIM-kortið.

background image

Verkfæri

106

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.