![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N70/is/Nokia N70_is019.png)
Snið án tengingar
Ótengdur
sniðið gerir þér kleift að nota tækið án tengingu
við þráðlausa símkerfið. Þegar þú virkjar sniðið
Ótengdur
er slökkt á tengingunni við þráðlausa símkerfið og það
gefið til kynna með
í sendistyrksvísinum. Lokað er á
allar þráðlausar sendingar til og frá tækinu. Ef þú reynir að
senda skilaboð er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem
þau eru send síðar.
Viðvörun: Í sniði án tengingar er hvorki hægt að
hringja né taka á móti símtölum. Áfram er hægt að
hringja í ákveðin neyðarnúmer en engar aðrar aðgerðir,
þar sem tenging við símkerfið er nauðsynleg, eru
mögulegar. Eigi að hringja verður fyrst að virkja
símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu
hefur verið læst skal færa inn lykilnúmerið.
Viðvörun: Það verður að vera kveikt á tækinu til
að hægt sé að nota sniðið
Ótengdur
. Ekki má kveikja
á tækinu þar sem notkun þráðlausra tækja er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
Til að loka
Ótengdur
sniðinu skaltu ýta á
og velja
annað snið. Þá verða þráðlaus samskipti aftur möguleg (ef
nægur sendistyrkur er fyrir hendi). Ef Bluetooth-tenging er
virk þegar kveikt er á
Ótengdur
sniðinu er slökkt á henni.
Bluetooth-tengingunni er sjálfkrafa komið á aftur eftir að
slökkt er á sniðinu
Ótengdur
. Sjá ‘Stillingar Bluetooth’ á
bls. 89.
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N70/is/Nokia N70_is020.png)
Stillingum tækisins breytt
20
Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.